Blaðamenn Morgunblaðsins hafa verið ræstir út á yfirsnúningi til að reyna að skapa þá ásýnd að landsbyggðarþingmenn séu að sækja sér aukapening með því að skrá lögheimili sín í þeim kjördæmum sem þeir eru þingmenn fyrir.

Framsetning Morgunblaðsins í þessu máli er engin tilviljun, heldur hefur hún fyrst og fremst snúist um að sverta þingmenn Flokks fólksins. Væntanlega er það vegna þess að ritstjórn Morgunblaðsins telur flokkinn vera höfuðandstæðinga auðmannanna sem eiga blaðið. Áratugum saman hafa slíkar greiðslur verið greiddar, stærstur hluti þeirra til þingmanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, án þess að Morgunblaðið hafi gefið því gaum, en um leið og Flokkur fólksins kemst í ríkisstjórn, þá þykir Morgunblaðinu mjög mikilvægt að taka þetta til ítarlegrar umfjöllunar. 

Staðreyndin er sú að allir þingmenn landsbyggðarkjördæma fá þessar greiðslur óháð skráðu lögheimili, enda eru þær lögbundnar og ætlaðar til að gera þeim kleift að sinna hlutverki sínu gagnvart kjósendum kjördæmisins.

Ef við tökum mig sem dæmi, nýkjörinn þingmann Norðausturkjördæmis, þá er heimili mitt annars vegar á Sauðárkróki, þar sem ég hef búið um áratugaskeið og hins vegar er ég með aðsetur hjá aldraðri móður minni í Norðurmýrinni í Reykjavík. Lögheimilið er engu að síður á Laugarvegi á Siglufirði, hjá skyldfólki þar sem ég hef haft annan fótinn inn á heimilinu frá barnæsku, m.a. þegar ég vann í fiski hjá Þormóði ramma.

Ég hef engan ávinning af því að skrá lögheimili mitt á Siglufirði, annan en að geta kosið mig sjálfan í Alþingiskosningum. En mér finnst bæði sjálfsagt og eðlilegt að útsvarið mitt renni til þess kjördæmis sem ég er kjörinn fulltrúi fyrir.

Sigurjón Þórðarson

Þingmaður Flokks fólksins