Nú hafa aðstæður á Norðurlandi eystra þróast með þeim hætti að full ástæða er til þess að aðgerðastjórn almannavarna í umdæmi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hvetji íbúa svæðisins til einbeittrar samstöðu í baráttu við kórónuveiruna.
64 virk smit á Norðurlandi eystra
MBL.is greindi fyrir skömmu frá því að 64 smit eru nú í gangi í umdæminu, segir þar meðal annars.
„Staðan er ekki góð,“ segir Hermann Karlsson, hjá aðgerðastjórn Almannavarna á Norðurlandi eystra. 14 ný smit voru greind þar í gær þannig að þau eru alls 24 á tveimur dögum. Flest þeirra tengjast tveimur atburðum, samkvæmi og jarðarför.
Ný smit á Norðurlandi eystra eru ekki inni í tölum á covid.is í dag fyrir Norðurland eystra þar sem ekki var hægt að fljúga með sýnin suður í gærkvöldi vegna veðurs og því ekið með þau suður.
Hermann fékk niðurstöðurnar skömmu fyrir hádegi. Alls eru virk smit á Norðurlandi eystra nú 64 talsins og 230 eru í sóttkví.
Jafnframt segir á facebooksíðu Lögreglunnar.
“Smitum á svæðinu hefur fjölgað undanfarna daga og því nauðsynlegt að hvert og eitt okkar geri það sem hægt er til að hefta frekari útbreiðslu veirunnar. Allir kunna viðbrögðin, allir geta gert sitt og nú þurfum við öll að standa saman. Persónubundnar sóttvarnir verða að vera í lagi ef árangur á að nást.
Reglulegur handþvottur, sprittun, grímunotkun þar sem hún á við og virðing fyrir nálægðarmörkum við annað fólk er lífsnauðsynleg í baráttunni við þennan vágest sem veiran er. Stöndum okkur öll sem eitt í að virða sóttvarnarreglur og tökum fullt tillit til þeirra tilmæla sem gefin eru út af sóttvarnarlækni. Forðumst öll ferðalög og mannamót eins og frekast er unnt. Gerum þetta saman, gerum þetta vel og sýnum samstöðu, okkar allra vegna.“