Eldur kom upp í bíl á Grundargötu á Siglufirði nú fyrir skömmu.

Foreldrar barna frá Ólafsfirði sem voru í dósasöfnunar leiðangri fyrir 4.flokk KF-Dalvík í fótbolta voru svo óheppin að það kviknaði í bíl þeirra. Bíllinn varð alelda á skammri stundu en Slökkvilið Fjallabyggðar brást skjótt við og hefur slökkt í bílnum.

Myndirnar tók G. Óli Leósson.