Mennta- og barnamálaráðherra úthlutaði nýlega styrkjum til að efla samstarf og nýsköpun á vettvangi íslenskunnar sem annars tungumáls. Tæplega 200 milljónum var úthlutað til 17 aðila til að styðja við nýjungar í íslenskunámi innflytjenda og ná til fjölbreyttari hópa með nýju námi, aðferðum eða verkfærum sem gera á aðgengileg öllum.

Úthlutunin byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að innflytjendur fái tækifæri til að læra íslensku og taka virkan þátt í samfélaginu. Hún byggir jafnframt á menntastefnu 2030 og á þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024-2026.

Leitað var til m.a. þeirra sem starfa beint með innflytjendum eftir nýjum hugmyndum sem vinna ætti í samstarfi ólíkra aðila og miðla áfram sem víðast. Öflugt samstarf var því eitt af þeim skilyrðum sem varð að uppfylla til að fá styrk og því verða nú til ný samstarfsnet sem efla íslenskuna þvert á skólastig, sveitarfélög, stofnanir og aðila vinnumarkaðarins.

Styrkirnir voru auglýstir lausir til umsóknar á vef ráðuneytisins í agúst þar sem tilgreind voru skilyrði og áherslusvið. Tengja þurfti samstarfsverkefnin við a.m.k. einn meginmarkhóp innflytjenda þar sem talin er sérstök þörf á nýjum nálgunum. Alls barst 51 umsókn. Ákveðið var að styrkja 17 umsóknir sem allar fólu í sér áhugavert samstarf og fróðlegar nýjungar sem ættu að geta farið í almenna dreifingu. Eftirfarandi verkefni hlutu styrk:

Heiti verkefnis:Umsækjandi:Samstarfsaðili/-arStyrkupphæð
Tengsl og tunga. Íslenska í verkiEirð NáttúruhúsNýsköpunarsetrið við Lækinn, Vinnumálastofnun3.300.000
Gefum íslensku tímaHafnarfjarðarbærMímir símenntun, Íslenskuþorpið8.185.000
Inngildingarbrú milli háskólans og vinnumarkaðarHáskóli íslandsVinnumálastofnun9.570.000
Skólaorðaforði fyrir erlenda foreldra- samtalskvöld með stuðningiRauði krossinn við EyjafjörðMenntaskólinn á Akureyri, VMA, Akureyrabær,4.740.000
Samtal og samfélag- íslenska í daglegu lífiFarskólinn- Miðstöð símenntunar á NVAldan stéttarfélag6.000.000
Íslenskuvæn fyrirtæki- Tungumálastefna og fyrirmyndarverkefni fyrir stóra og smáa vinnustaðiMímir símenntunASÍ, Samtök fyrirtækja í velferðaþjónustu, Mýrdalshreppur, SA, FA,, SAK, Grund hjúkrunarheimili18.018.000
ÍSAN- íslenska til inngildingarFjölbrautaskólinn í BreiðholtiMenntaskólinn á Ísafirði, Menntavísindasvið HÍ31.692.894
Grunnspor- leið að námi og samfélagsþátttöku ungs fólks af erlendum upprunaMiðstöð símenntunar á SuðurnesjumReykjanesbær5.410.125
Lært í gegnum leikinn- íslenskuspil fyrir börn og foreldraHeimili og skóli, landssamtök foreldraSkóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar5.000.000
Bara tala í framhaldsskólumBara tala ehf.Verslunarskóli íslands, Tækniskólinn, Framhaldsskólinn á Húsavík, Verkmenntaskóli Austurlands25.000.000
Umönnun á íslensku- Efling íslenskukunnáttu og menningarfærni á Blend deildum LandspítalansMúlti kúltí ehf.Landakot, bráða- lyfja- og endurhæfingardeild3.189.000
Íslenskumót: Tenging, tungumál og tækifæriMenntaskólinn á ÍsafirðiTækniskólinn8.855.000,00
Virkni og íslenskunám einangraðra kvenna af erlendum upprunaSveitarfélagið ÁrborgFræðslunet Suðurlands1.436.000
Saman í málinu- íslenskukennsla foreldra barna í frístundastarfiÞekkingarnet ÞingeyingaNorðurþing, Völsungur6.525.000
Mín Rödd: að efla íslenskukunnáttu, menningar- og samfélagslæsi ungra innflytjendaFramvegisFjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu7.990.000
Læsi er lykillinn að lýðræðiDósaverksmiðjanVinnumálastofnun, FÁ og Hafnarfjarðarbær26.000.000
Áfram íslenska- lykilinn að samfélaginuVia Nostra ehf.Brimsalir, Framhaldsskólinn á Tröllaskaga, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Fjallabyggð28.080.000
Alls  198.991.019