Ástarpungarnir voru formlega útnefndir Bæjarlistamenn Fjallabyggðar 2026 við hátíðlega athöfn í Alþýðuhúsinu á Siglufirði síðastliðinn föstudag. Útnefningin fór fram í einu af þeim menningarhúsum sem Fjallabyggð hefur upp á að bjóða og eftirleiðis vill sveitarfélagið nota þennan vettvang til þess að kynna menningarhúsin fyrir íbúum og gestum samfélagsins.
Auk þess að útnefna bæjarlistamennina veitti Fjallabyggð styrki til handa safna og setra, menningarmála og stærri viðburða í sveitarfélaginu.
Við tilefnið kom fram nýstofnaður kvennakór Fjallabyggðar, Hytturnar sem og að Ástarpungarnir tóku lagið.
Fjallabyggð óskar bæjarlistamönnum til hamingju með útnefninguna, sem og öllum styrkþegum sem hafa auðgað samfélagið með listsköpun sinni.

f.v. Rodrigo Lopes, Mikael Sigurðarson, Guðmann Sveinsson, Tryggvi Þorvaldsson, Júlíus Þorvaldsson og Hörður Ingi Kristjánsson.





Mynd: af vefsíðu Fjallabyggðar



