Sameiginlegt þorrablót eldri borgara á Siglufirði og Ólafsfirði í Fjallabyggð var haldið í Tjarnarborg á laugardaginn síðastliðinn og fór vel fram.
Á boðstólum var hefðbundin þorraveisla sem kom frá Fiskbúð Fjallabyggðar. Að borðhaldi loknu tók við dagskrá með söng, dansi og sprelli undir stjórn Stúlla og Tóta, sem héldu uppi góðri stemningu fram á kvöld.
„Þetta tókst í alla staði vel. Það var vel mætt, rúmlega áttatíu manns, og fólkið var mjög ánægt með matinn. Hann var vel útilátinn og afar bragðgóður,“
sagði Pálína Pálsdóttir í samtali við trolli.is þegar hún var spurð út í hvernig til hefði tekist.
Meðfylgjandi myndir eru frá Pálínu Pálsdóttur og eru birtar hér með góðfúslegu leyfi hennar.






















