Sjómannafélag Ólafsfjarðar hefur birt tilkynningu á Facebook-síðu sinni þar sem greint er frá breytingum á tilhögun Sjómannahátíðarinnar í Fjallabyggð árið 2026. Undirbúningur er þegar hafinn og ljóst að hátíðin verður með hefðbundnu sniði að mestu leyti, þó með nokkrum breytingum.
Stærsta breytingin snýr að aðalskemmtun hátíðarinnar sem færist fram á laugardagskvöldið 6. júní í Íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði. Hingað til hefur aðalskemmtunin farið fram á sjálfan sjómannadaginn, en nú hefur verið brugðist við óskum margra um að halda hana á laugardagskvöldi í stað sunnudagskvölds.
Sjómannamessan verður áfram á sínum stað á sjómannadaginn, sunnudaginn 7. júní, og er áætlað að hún hefjist klukkan 11.30 í Ólafsfjarðarkirkju. Eftir hádegi sama dag verður fjölskylduskemmtun við Tjarnarborg.
Þá kemur fram í tilkynningunni að föstudagurinn 5. júní verði með breyttu sniði miðað við fyrri ár, en nánari dagskrá verður kynnt í apríl.
Sérstök áhersla er lögð á að kvöldskemmtunin laugardaginn 6. júní sé opin öllum sem vilja sækja hana. Hún er kynnt sem kjörin samkoma fyrir vinnufélaga, vinahópa og fjölskyldur sem vilja gera sér glaðan dag. Vitringarnir sjá um veislustjórn, boðið verður upp á margrétta veislumat frá Bautanum og hljómsveitin Ástarpungarnir leikur fyrir dansi.
Samkvæmt tilkynningu félagsins veitir Egill Freyr Ólason frekari upplýsingar um hátíðina.
Myndir frá sjómannadagshelginni í fyrra:
