Fyrir liggja hjá Fjallabyggð uppfærð samningsdrög við Ferðaklasa Fjallabyggðar ásamt drögum að samþykktum félagsins sem áætlað er að stofna fyrir lok febrúar 2026. Jafnframt liggur fyrir álit lögmanns Fjallabyggðar.
Bæjarráð samþykkti fyrirliggjandi drög að samningi við Ferðaklasa Fjallabyggðar að gefnum þeim skilyrðum er fram koma í drögum að samþykktum félagsins.
Að sögn Þóris Hákonarsonar bæjarstjóra Fjallabyggðar ræðst kostnaður sveitafélagsins að hluta af því hversu margir hagsmunaaðilar eru tilbúnir að taka þátt í verkefninu en með öllum kostnaði m.a. kynningarefni, birtingum, og markaðsátaki o.fl. getur kostnaður á árinu orðið að hámarki 7 milljónir. Öll framlög í verkefnið eru háð þátttöku hagsmunaaðila og einstaklinga í verkefninu.
Fyrir lá erindi frá þremur aðilum f.h. Hvanndala Lodge, Hótel Sigluness og Sóta Summits á fundi bæjarráðs þann 6. nóvember 2025, þar sem óskað er eftir stofn – og rekstrarstyrk í sameiginlegan vettvang ferðaþjónustuaðila, Fjallabyggðar og annarra hagsmunaaðila í formi Ferðaklasa Fjallabyggðar sem ætlað væri að efla samstarf og samhæfingu ferðaþjónstuaðila og annarra aðila á svæðinu.
Hægt er að sjá stefnumótun Ferðaklasa Fjallabyggðar: HÉR
