Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) stendur fyrir bikarmóti á vegum Skíðasamband Íslands fyrir keppendur á aldrinum 12 til 15 ára næstu daga. Um er að ræða stórt mót þar sem um 90 keppendur hafa þegar skráð sig til leiks og lýkur skráningu í dag, 12. febrúar.
Félagið sótti um að halda mótið og var valið til verksins. Að sögn Hjalta Gunnarssonar hjá Skíðafélagi Siglufjarðar Skíðaborg, sem er einn af skipuleggjendum mótsins, er það bæði heiður og áskorun að fá slíkt verkefni í hendurnar.
„Við sóttum um að fá að halda mót og vorum svo heppin að vera valin. SSS sér um alla framkvæmd mótsins en það er langt síðan haldið var mót af þessari stærðargráðu á Siglufirði og því er þekking á mótahaldi af þessu tagi takmörkuð hjá okkur,“
segir Hjalti í samtali við trolli.is.
Hann segir félagið hafa leitað til nágrannafélaga eftir aðstoð.
„Við leituðum til nágranna okkar á Dalvík og Akureyri og fáum þaðan dýrmæta aðstoð. Einnig er Skíðadeild Ármanns okkur innan handar. Þessi hjálp er okkur ómetanleg og við ætlum að nýta reynslu og þekkingu frá þessum félögum til að styrkja okkur í mótahaldi og byggja upp þekkingu hjá okkar fólki hjá SSS.“
Undirbúningur hefur staðið yfir að undanförnu og er mikill hugur í fólki. Hjalti segir stemninguna vera góða.
„Það er gríðarlegur hugur í foreldrum iðkenda í SSS að gera vel um helgina og mikil spenna í öllum hópnum.“
Á dögunum var haldinn undirbúningsfundur vegna mótsins þar sem foreldrar voru boðaðir til leiks og er meðfylgjandi mynd frá fundinum.
Hátt í 50 foreldrar mættu á fundinn og eru tilbúnir að taka þátt í undirbúningi og vinnu við mótið. Að sögn Hjalta eru foreldrar félagsins ótrúlegir vinnuþjarkar sem leggja sitt af mörkum til að gera mótið sem glæsilegast.
Bikarmótið verður haldið í Skarðsdal nú um helgina og ljóst að þar verður líf og fjör þegar ungt skíðafólk hvaðanæva af landinu mætir til keppni.
Mynd: facebook / Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg
