Myndir: Stillt yfir Siglufirði í ljósaskiptunum

Falleg kvöldbirta setti svip sinn á Siglufjörð síðdegis í gær. Stillt var yfir bænum og kyrrðin áþreifanleg, enda fátt sem rauf ró kvöldsins annað en mjúk birta frá götuljósunum. Slík kvöld minna á hvað það er gott að búa í litlum bæ þar sem allt virðist ganga hægar fyrir sig.

Myndirnar tók Vilmundur Ægir Eðvarðsson og fanga þær stemninguna á Sigló eins og hún gerist best á vetrarkvöldi.

Við látum myndirnar njóta sín.