Grímseyingar halda sitt árlega þorrablót í dag, föstudaginn 13. febrúar.

Þetta er hefðbundið „trogþorrablót“ þar sem hver fjölskylda mætir með sínar eigin kræsingar. Viðburðurinn er einn af hápunktum skemmtana í Grímsey. Mikið er lagt upp úr skreytingum og skemmtiatriðum. Fengin er hljómsveit úr landi til að halda uppi stuðinu fram eftir nóttu.

Þar sem ferjan er ennþá í slipp hefur verið bætt við aukaflugi til Grímseyjar í dag, og til baka á sunnudaginn svo sem flestir geti tekið þátt í gleðinni og fengið til sín fjölskyldu og gesti á blótið.

Tíðin undanfarið hefur verið góð en frekar vindasamt. Varla hefur sést snjór í vetur. Hvassviðrið hefur einnig haft áhrif á sjósókn og flug en vonandi verða vindar hagstæðir um helgina þannig að allir komist á þorrablótið.

Segja má að leiðin liggi til Grímseyjar og í fluginu síðastliðinn þriðjudag voru m.a. fjórar kynslóðir af sama kvenlegg, sú elsta 80 ára en sú yngsta mánaðargömul.

Talið frá hægri: Gyða Thorsteinsteinsson 80 ára, Unnur Ingólfsdóttir, Brá Svafarsdóttir og óskírð Ragnarsdóttir rúmlega mánaðargömul.

Mynd: Halla Ingólfsdóttir