Fjarðargangan fer fram á Ólafsfirði í dag og er að þessu sinni sérstakt tilefni til hátíðarhalda, því í ár eru liðin 40 ár frá því að gangan var fyrst haldin. Viðburðurinn hefur skipað sér sess í vetrardagskrá bæjarins og laðar ár hvert að sér bæði heimafólk og gesti sem vilja taka þátt eða fylgjast með.

Dagskráin er þétt og hófst snemma í morgun þegar afhending keppnisgagna fór fram í Tjarnarborg milli klukkan 9 og 10:30.  Barnagangan verður ræst klukkan 10:30 og klukkan 11:00 fer sjálf Fjarðargangan af stað. Sundlaugin á Ólafsfirði opnar klukkan 12:00 fyrir þá sem vilja láta þreytuna líða úr sér í lauginni.

Seinnipart dags verður líf og fjör í Tjarnarborg þar sem craftverslun verður með pop up verslun frá klukkan 13:00 til 16:00. Klukkan 14:30 hefst kaffisamsæti og verðlaunaafhending, þar sem þátttakendur og gestir koma saman og gera sér glaðan dag.

Það er því ljóst að dagurinn verður bæði hátíðlegur og fjölbreyttur á Ólafsfirði þar sem 40 ára saga Fjarðargöngunnar er heiðruð með þátttöku, samveru og góðri stemningu.