Þann 8 janúar síðastliðinn samþykkti skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga að veita styrki úr Styrktarsjóði TÁT. Er það í fyrsta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. Tveir einstaklingar sóttu um og eru bæði fyrrverandi nemendur við skólann. Það eru þau Írena Rut Jónsdóttir sem fær styrk til áframhaldandi söngnáms í rythmískum söng við Tónlistarskólann á Akureyri og Þröstur Ingvarsson vegna útgáfu á eigin tónlist. Bæði Írena og Þröstur byrjuðu mjög ung í tónlistarskólanum og hafa getið sér gott orð og verið virkir þátttakendur í tónlistarflutningi utan skólans.
Stofnendur sjóðsins eru rekstraraðilar Tónlistarskólans, sem eru Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð. Sjóðurinn mun starfa i nánum tengslum við Tónlistarskólann á Tröllaskaga.
Upphaflegt stofnfé kemur hins vegar frá gömlum velunnurum gamla Tónlistaskóla Siglufjarðar. Það voru þeir Kristján Sigtryggson, Óskar Garibaldason og Sigursveinn D Kristinsson. Á Siglufirði, árið 2000, var gengið frá skipulagsskrá um meðferð stofnfjár upphaflega sjóðsins. Eftir sameiningu tónlistarskólanna á Siglufirði og Ólafsfirði árið 2010 færðist sjóðurinn undir þann sameiginlega hatt, og í dag Tónlistarskólann á Tröllaskaga sem rekinn er af Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð í sameiningu.
Markmið sjóðsins var og er að styrkja unga nemendur og tónlistarmenn, sem hafa staðið sig vel í námi í tónlistarskólanum og sinni heimabyggð, og vilja afla sér meiri menntunar eða vinna að öðrum tónlistartengdum verkefnum.
Samkvæmt reglum sjóðsins má aldrei skerða stofnfé, einungis er úthlutað af vaxtatekjum.
Stjórn sjóðsins er skólanefnd TÁT.
Mynd: Tónlistaskólinn á Tröllaskaga
