Ljóðlist og tónlist runnu saman í hlýlegri heimsókn þegar forstöðumaður Ljóðaseturs Íslands, Þórarinn Hannesson, heimsótti hjúkrunarheimilið Hlíð á Akureyri á dögunum. Með í för var tónlistarmaðurinn Sturlaugur Kristjánsson, sem lék undir og tók þátt í dagskránni.
Þórarinn sagði frá starfsemi Ljóðasetursins, flutti nokkur ljóð og kvað stemmur við góðar undirtektir. Sungið var saman og naut söngurinn sín vel við undirleik Sturlaugs. Gömlu góðu íslensku lögin ómuðu um salinn, hressilega var tekið undir og sumir stigu jafnvel spor í takt við tónlistina. Stemningin var hlý og lifandi, og samveran greinilega kærkomin.
Um kvöldið hélt dagskráin áfram á Akureyri þegar Þórarinn sá um ljóðalestur á Sólarkaffi Vestfirðinga á Norðurlandi, þar sem ljóðlistin fékk að njóta sín.
Greint er frá heimsókninni í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu Ljóðaseturs Íslands, þar sem sagt er frá ljóðalestri, söng og góðum viðtökum gesta á báðum stöðum.
Mynd: Facebook / Ljóðasetur Íslands



