Fjallabyggð tekur á móti 52 liðum í einu stærsta blakmóti ársins

Mótstjórn Siglómótsins. Frá vinstri eru Grétar Örn Sveinsson, Ólafur Björnsson og Hilmar Þór Hreiðarsson.

Blakfélag Fjallabyggðar heldur sitt árlega Siglómót í blaki dagana 27. og 28. febrúar næstkomandi og stefnir í eitt fjölmennasta mót frá Covid-hléinu. Alls eru 52 lið skráð til leiks, 12 karlalið og 40 kvennalið, og alls verða leiknir 125 blakleikir yfir helgina.

Siglómótið var fyrst haldið árið 2008 þegar átta lið tóku þátt. Að undanskildum Covid-árunum 2021 og 2022 hefur mótið vaxið jafnt og þétt og nýtur nú mikilla vinsælda. Til samanburðar voru 64 lið skráð árið 2019 og 60 lið árið 2020.

Að sögn Guðrúnar Sifjar Guðbrandsdóttur, gjaldkera Blakfélags Fjallabyggðar, seldist mótið upp á mettíma.

„Það komust færri að en vildu og seldist upp 1. desember síðastliðinn, aðeins átta klukkustundum eftir að opnað var fyrir skráningu,“

segir Guðrún í samtali við trolli.is.

Fjallabyggð tekur á móti 52 liðum í einu stærsta blakmóti ársins

Liðsmenn BF Segli saman komnir á Siglómótinu í fyrra.

Leikið verður bæði í íþróttahúsunum á Siglufirði og í Ólafsfirði. Fyrstu leikir hefjast klukkan 17.20 á föstudag og verður spilað fram til um klukkan 22.30. Á laugardag hefjast leikar klukkan 8.00 í báðum húsum og stefnt er að því að keppni ljúki um klukkan 16.30 til 17.00 svo þátttakendur geti gert sig klára fyrir verðlaunaafhendingu.

Glæsilegt lokahóf verður haldið í Rauðku þar sem uppselt er, en rúmlega 200 miðar hafa þegar verið seldir. Verðlaunaafhending fer fram í Bátahúsinu klukkan 18.30 áður en hátíðarhöldin færast yfir í Rauðku.

Stemningin verður að vanda rafmögnuð og hvetja mótshaldarar alla til að mæta í íþróttahúsin í bæjarkjörnunum og fylgjast með kraftmikilli keppni.

Myndir: úr einkasafni