Fjórir leikmenn framlengdu samning sinn við Knattspyrnufélag Fjallabyggðar á dögunum.

Þetta eru þeir Grétar Áki Bergsson, Þorsteinn Már Þorvaldsson, Hrannar Snær Magnússon og Bjarki Baldursson.

Þessir leikmenn hafa verið mikilvægur partur af uppbyggingu félagsins undanfarin ár og er mikil ánægja innan félagsins að halda þessum mönnum í KF.

Myndir/KF