Dalvíkingurinn Amanda Guðrún Bjarnadóttir, kylfingur úr GHD hefur vakið athygli fyrir góðan árangur í golfíþróttinni.

Um helgina stóð hún uppi sem sigurvegari í Norðurlandsmótinu í holukeppni sem fór fram á Jaðri. Í mótinu spiluðu 16 af forgjafarlægstu kylfingum Norðurlands, þannig þetta er flott afrek hjá henni og óskum við Amöndu innilega til hamingju. Á leið sinni að titlinum hafði Amanda betur gegn Birni Auðunni, Bergi Rúnari, Sturlu Höskulds, og að lokum Karli Hannesi í úrslitaleiknum.

Úrslitaleikurinn réðist á 17. holunni og var það Húsvíkingurinn Karl Hannes Sigurðsson sem hreppti annað sætið. Bæði spiluðu þau flott golf yfir helgina og var úrslitaleikurinn sannarlega hnífjafn.

Í verðlaun fékk Amanda 72.000 krónur og titillinn holukeppnismeistari Norðurlands. Í heildina var þetta skemmtilegt mót sem verður vonandi bara enn stærra og flottara á komandi árum.

Amanda er að útskrifast sem stúdent frá MA eftir þriggja ára nám 17. júní.

 

Skjáskot: GA