Karlakór Fjallabyggðar, Kirkjukór Siglufjarðar og Vorboðakórinn (kór eldri borgara á Siglufirði) syngja í aðventustund í Siglufjarðarkirkju sunnudaginn 10. desember klukkan 17:00.

Jólahugleiðingu flytur Örlygur Kristfinnsson.

Fermingarbörn taka þátt í stundinni. Prestur er Stefanía Steinsdóttir.

Allir hjartanlega velkomnir.

Mynd: Sigurður Ægisson