Skólastarfið fer vel af stað í Menntaskólanum á Tröllaskaga eftir jólafrí og lífið gengur að mestu sinn vanagang þrátt fyrir sóttvarnartakmarkanir.

Þar ræður mestu hve fáir nemendur eru í dagskóla og rúmast innan samgöngutakmarkana.

Langflestir nemendur eru fjarnemar eða hátt í fimmhundruð talsins og koma vitaskuld aldrei í skólann og geta stundað nám sitt eðlilega þrátt fyrir að vera í sóttkví eða búa við aðrar takmarkanir.

Í gær sýslaði hver við sitt í skólanum í Ólafsfirði. Á meðan sum grúfðu sig yfir snjalltæki sín voru nokkrir nemendur að spreyta sig í ljósmyndastúdíóinu, en skólinn er mjög vel búinn tækjum til ljósmyndunar.

Forsíðumynd/ Amalía Þórarinsdóttir myndar Margréti Brynju Hlöðversdóttur í stúdíói skólans. Mynd: SMH.