Skotfélag Ólafsfjarðar hélt riffilmót félagsins um helgina þar sem keppt var í .22 cal á 25 metra færi í kjallara MTR. Mótið fór fram í gærmorgun, laugardaginn 7. mars, og mættu fimm keppendur til leiks.
Keppnin var jöfn og spennandi en að lokum stóð Ingimundur Sigurðsson uppi sem sigurvegari með fullt hús stiga, 250 stig og 13 x í miðju. Rétt á eftir honum kom Erla Sigurgeirsdóttir, einnig með 250 stig en 10 x. Rögnvaldur Jónsson hafnaði í þriðja sæti með 249 stig og 4 x.
Í fjórða sæti varð Finnur Steingrímsson með 245 stig og 5 x, og í fimmta sæti Þorsteinn Egilson með 244 stig og 2 x.
Keppnisfyrirkomulagið var þannig að skotið var á 25 skífur sem eru 35 mm að stærð með stigum frá 6 upp í 10. Hver keppandi hafði 20 mínútur til að ljúka skotunum og gat hámarksskor orðið 250 stig og 25 x. Skotið var með tvífót að framan og hendina að aftan, en vettlingar voru ekki leyfðir.
Nýverið festi Skotfélag Ólafsfjarðar einnig kaup á Vector Optics Forester 20–60×60 spotter sem nýttur var við mótið. Samkvæmt félagsmönnum kemur hann mjög vel út og auðveldar keppendum og dómurum að fylgjast með skotunum á skífunum.
Að venju ríkti góð stemning á mótinu og voru allir velkomnir, auk þess sem kaffi var á könnunni fyrir keppendur og gesti.
Myndir: Facebook / Skotfélag Ólafsfjarðar








