Alls bárust sextán umsóknir um starf hafnarvarðar við Fjallabyggðarhafnir sem auglýst var í febrúar. Samantekt um umsóknirnar lá fyrir á 8. fundi framkvæmda-, hafna- og veitunefndar Fjallabyggðar.

Við yfirferð umsókna kom fram að tólf umsækjendur uppfylltu ekki þau skilyrði sem talin eru æskileg fyrir starfið. Í framhaldinu var ákveðið að bjóða fjórum umsækjendum í viðtal.

Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd fól hafnarstjóra og formanni nefndarinnar að boða umsækjendurna til viðtals og ganga frá ráðningu í kjölfarið.

Tengdar fréttir: