Bilun getur haft áhrif á kalt neysluvatn í Ólafsfirði í dag, miðvikudaginn 11. mars 2026.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjallabyggð. Þar segir að unnið sé að því að finna bilunina og koma ástandinu í eðlilegt horf sem fyrst.

Óljóst er hve lengi þetta mun standa yfir.

Stutt rafmagnsleysi á Siglufirði og í nágrenni í gær

Rafmagnslaust varð á Siglufirði og í nágrenni í um tíu mínútur síðdegis í gær, þriðjudaginn 10. mars 2026.

Samkvæmt tilkynningu frá Rarik var um að ræða fyrirhugaðar prófanir í aðveitustöð á Siglufirði. Rafmagn fór af svæðinu klukkan 16.30 og komst aftur á um klukkan 16.40.

Viðgerð er nú lokið og búist er við að ekki komi til frekara rafmagnsleysis vegna þessa.

Mynd: Fjallabyggð