Það þarf ekki alltaf að bíða eftir helgi til að gera sér dagamun. Þriðjudaginn 31. mars klukkan 19:00 verður boðið upp á sérstakan kvöldverð á Síldarkaffi á Siglufirði, þar sem sænski kokkurinn Elias Johansson leiðir eldhúsið í samstarfi við Ted Karlberg.
Elias, sem kemur frá Karlskrona í Svíþjóð, er á leið í sína fyrstu heimsókn til Íslands og hefur mikinn áhuga á að kynnast bæði staðnum og fólkinu. Á sama tíma hyggst hann kynna sína eigin matargerð fyrir gestum, þar sem norræn hráefni fá að njóta sín með áhrifum frá japanskri matargerð og franskri hefð.
Síld, sjávarfang og lamb í aðalhlutverki
Í sameiningu munu þeir Elias og Ted reiða fram matseðil þar sem síld, sjávarfang og lambakjöt verða í forgrunni, en markmiðið er að skapa eftirminnilega matarupplifun í skandinavískum anda.
Ted er vel kunnugur Síldarkaffi og hefur komið að verkefninu frá upphafi, meðal annars með því að tengja staðinn við erlenda matreiðslumenn á borð við Elias og Joakim Bengtson, sem stýrði eldhúsinu síðastliðið sumar.
„Hef ekki litið um öxl síðan“
Að sögn Eliasar sjálfs kviknaði áhugi hans á matreiðslu snemma.
„Þegar ég var 12 ára gamall ákvað ég að verða kokkur og hef ekki litið um öxl síðan,“
segir Elias Johansson í samtali við trolli.is.
Hann segir matargerð sína eiga rætur í Blekinge í suðurhluta Svíþjóðar, þar sem áhersla sé lögð á að sameina norræn hráefni með alþjóðlegum áhrifum. Undanfarin tíu ár hefur hann rekið veitingastaði og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum þar sem gæði hráefnis og fagmennska eru í forgrunni.
„Fyrir mér snýst allt um að gott hráefni fái að njóta sín til fulls, að það sé valið á réttum tíma og í sínum bestu gæðum, og sótt með ábyrgum og sjálfbærum hætti,“
segir hann.
Maturinn á að segja sögu
Elias leggur jafnframt áherslu á að gera fágaða matargerð aðgengilega breiðum hópi gesta.
„Markmið mitt er að gera fágaða matargerð aðgengilega öllum, án tilgerðar. Fyrir mér á matur að vera lifandi upplifun sem segir sögu,“
bætir hann við.
Kvöldverðurinn fer fram þriðjudaginn 31. mars klukkan 19:00 og er sætafjöldi takmarkaður. Verð á mann er 9.800 krónur og er áhugasömum bent á að tryggja sér sæti með því að bóka borð í síma 467 1604 eða 865 2036, eða með því að senda tölvupóst á kaffi@sild.is.
Vandaður matseðill kvöldsins
Matseðill kvöldsins á Síldarkaffi þriðjudaginn 31. mars endurspeglar skandinavíska nálgun Eliasar Johansson og Teds Karlberg.
Myndir: Facebook / Síldarkaffi




