Slökkvilið Fjallabyggðar styrkir undirbúning með nýjum æfingarbúnaði

Slökkviliðsmenn við æfingar í reykfylltu umhverfi þar sem nýr búnaður hjálpar til við að líkja betur eftir raunverulegum aðstæðum.

Slökkvilið Fjallabyggðar hélt æfingu í gærkvöldi þar sem farið var yfir viðbrögð og skipulag í mögulegum útköllum.

Greint er frá æfingunni í færslu frá Slökkviliði Fjallabyggðar. Um var að ræða svokallaða töfluæfingu þar sem settar voru fram ímyndaðar aðstæður sem gætu komið upp í útkalli og rædd viðbrögð slökkviliðsmanna, skipulag slökkvi- og björgunarstarfs og hvernig best væri að bregðast við hverju tilviki.

Á æfingunni voru tekin fyrir þrjú dæmi sem tengdust stórum byggingum í Fjallabyggð. Slík æfing gefur slökkviliðsmönnum tækifæri til að fara yfir verkferla og samhæfingu áður en til raunverulegra aðstæðna kemur.

Slökkvilið Fjallabyggðar styrkir undirbúning með nýjum æfingarbúnaði

Í æfingunni var sett fram sviðsmynd þar sem eldur kviknar í húsnæði Allans, gamla bíóhúsinu á Siglufirði.

Þá fengu slökkviliðsmenn einnig kynningu á nýjum æfingarbúnaði sem slökkviliðið hefur nýverið fest kaup á. Búnaðurinn var keyptur fyrir styrk sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitti slökkviliðinu á síðasta ári.

Í búnaðinum er meðal annars öflug reykvél, hljóðbúnaður og sérstök lýsing sem gerir æfingar raunverulegri. Einnig er þar björgunardúkka sem vegur um 80 kíló og nýtist við þjálfun í björgun úr reykfylltu umhverfi.

Markmið búnaðarins er að gera æfingar í reykköfun raunhæfari og krefjandi, þannig að slökkviliðsmenn geti undirbúið sig sem best fyrir þær aðstæður sem þeir kunna að mæta í útköllum.

Slökkvilið Fjallabyggðar styrkir undirbúning með nýjum æfingarbúnaði

Slökkviliðsmaður með nýju björgunardúkkuna sem notuð verður við æfingar í reykköfun. Dúkkan vegur um 80 kíló og er ætluð til að líkja eftir raunverulegum björgunaraðstæðum.

Myndir: Facebook / Slökkvilið Fjallabyggðar