Lofti var blásið í ærslabelginn rétt fyrir páska svo krakkar í Húnaþingi vestra gætu hoppað í góða veðrinu yfir páskana.

Belgurinn verður eins og áður uppblásinn frá kl. 10:00 til kl. 20:00 alla daga.

Allir eru á eigin ábyrgð á hoppubelgnum – börn og ungmenni eru á ábyrgð forráðamanna.

Munum umgengnisreglur og göngum vel um hann saman.

  • Skóbúnað skal geyma fyrir utan belginn á meðan hoppað er. Ekki er leyfilegt að hoppa á belgnum í skóm.
  • Í rigningu og bleytu er ekki æskilegt að hoppa á belgnum, þar sem hann getur orðið mjög sleipur.
  • Halda skal svæðinu snyrtilegu. Muna að taka allt með sér þegar farið er; föt, sokka og rusl.
  • Sýna hvort öðru tillitssemi og virðingu á belgnum, sérstaklega þurfa eldri krakkar að taka tillit þegar litlir krakkar eru á belgnum.