Árlegur sumarfundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn í Skagafirði á morgun, miðvikudaginn 28. ágúst.

Ríkisstjórnin mun auk þess funda með fulltrúum sveitarfélaga innan vébanda Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra á Gránu Bistro á Sauðárkróki.

Að loknum þeim fundi, eða kl. 12:30, gefst fjölmiðlum tækifæri til að ræða við ráðherra.