Fjallabyggð auglýsir eftir hentugu framtíðar húsnæði til kaups eða leigu á Siglufirði undir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar NEON.
Við val á húsnæði verður horft til eftirtalinna þátta:
- Að húsnæðið sé ekki minna en 220 fermetrar.
- Að húsnæðið uppfylli skilyrði um aðgengi fyrir hreyfihamlaða eða bjóði upp á breytingu á aðgengi.
- Að skipulag húsnæðisins og staðsetning sé með þeim hætti að það henti starfsemi félagsmiðstöðvarinnar.
Eftirfarandi rými þurfa að vera til staðar hið minnsta:
- Eitt stórt rými, ekki undir 120m2
- Tvö herbergi hvort um sig um 20m2
- Eitt herbergi eða miðrými ekki undir 50m2
- Kaffistofa með eldhúsinnréttingu
- Að minnsta kosti tvö aðskilin salerni, þarf af eitt fyrir hreyfihamlaða/hjólastól
Tillögur / tilboð um húsnæði sendist á fjallabyggd@fjallabyggd.is fyrir 1. janúar 2021.
Frekari upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála í sími 464-9100 eða á netfangið rikey@fjallabyggd.is
Fjallabyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum innsendum tillögum og eða tilboðum eða taka hverju þeirra sem er.