Um er að ræða 95,7 m2 íbúð með þremur svefnherbergjum, á efri hæð í fjórbýli á Sauðárkróki.

Markmið Skagfirskra leiguíbúða hses. er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga, sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. laga um almennar leiguíbúðir við upphaf leigu, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda. Um byggingu og útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016. Almennum íbúðum er úthlutað til þriggja ára í senn samkvæmt forgangsröðun Skagfirskra leiguíbúða hses. Stjórn Skagfirskra leiguíbúða hses. úthlutar íbúðunum eftir að farið hefur verið yfir allar umsóknir.

Tekið skal fram að hunda- og kattahald er ekki leyfilegt í leiguhúsnæði Skagfirskra leiguíbúða.

Umsóknir skulu berast á leiguibudir@skagafjordur.is eða til Ráðhússins á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21. Með umsókninni skal fylgja afrit af nýjasta skattframtali og afrit af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda. Endurnýja þarf áður innsendar umsóknir ef áhugi er fyrir hendi að senda inn nýja umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2024.

Umsóknir og nánari upplýsingar er að finna hér á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er tekið við fyrirspurnum á netfangið leiguibudir@skagafjordur.is.