Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í verkin:
a) Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskálar Siglufirði
b) Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði.
Um er að ræða tvö aðskilin útboð og geta bjóðendur hvort sem boðið í annað verkið eða bæði. Samningur verður gerður um hvort verk fyrir sig.
FJAL-2021-1: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskálar Siglufirði.
FJAL-2021-2: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði.
Verkin felast í reglulegri ræstingu og sumarhreingerningu á starfsstöðvum leikskóla Fjallabyggðar samkvæmt útboðslýsingu.
Heildarfjöldi fermetra í útboði vegna Leikskála Siglufirði er 765,7 m².
Heildarfjöldi fermetra í útboði vegna Leikhóla Ólafsfirði er 379,2 m².
Reiknað er með að verktími hefjist þann 1. janúar 2022 og að gerður verði verksamningur um verkið til þriggja ára, eða til 31. desember 2024, með möguleika á framlengingu til eins árs.
Vettvangsskoðanir munu fara fram á eftirfarandi tíma:
- Leikskálar Siglufirði: mánudagur 6. desember kl. 14:00
- Leikhólar Ólafsfirði: mánudagur 6. desember kl. 15:20
Um er að ræða rafrænt útboð, útboðsgögn eru afhent frá og með 2. desember 2021 rafrænt. Skal ósk um afhendingu gagna berast á netfangið rikey@fjallabyggd.is.
Tilboðum ásamt tilskildum fylgigögnum skal skilað fyrir kl. 11:00 mánudaginn 13. desember 2021 með rafrænum hætti á netfangið rikey@fjallabyggd.is.
Tilboð skulu auðkennd svo:
- „FJAL-2021-1: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskálar Siglufirði.“
- „FJAL-2021-2: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði“
Opnunartími tilboða verður mánudaginn 13. desember kl. 11:00 á skrifstofu Fjallabyggðar.
Útboðin eru auglýst á utbodsvefur.is/
Allar nánari upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir
Netfang: rikey@fjallabyggd.is
Sími: 464 9100