Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í verkin:
a) Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskálar Siglufirði
b) Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði.

Um er að ræða tvö aðskilin útboð og geta bjóðendur hvort sem boðið í annað verkið eða bæði. Samningur verður gerður um hvort verk fyrir sig. 

FJAL-2021-1: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskálar Siglufirði.

FJAL-2021-2: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði.

Verkin felast í reglulegri ræstingu og sumarhreingerningu á starfsstöðvum leikskóla Fjallabyggðar samkvæmt útboðslýsingu. 

Heildarfjöldi fermetra í útboði vegna Leikskála Siglufirði er 765,7 m².

Heildarfjöldi fermetra í útboði vegna Leikhóla Ólafsfirði er 379,2 m².

Reiknað er með að verktími hefjist þann 1. janúar 2022 og að gerður verði verksamningur um verkið til þriggja ára, eða til 31. desember 2024, með möguleika á framlengingu til eins árs. 

Vettvangsskoðanir munu fara fram á eftirfarandi tíma: 

  • Leikskálar Siglufirði: mánudagur 6. desember kl. 14:00
  • Leikhólar Ólafsfirði: mánudagur 6. desember kl. 15:20

Um er að ræða rafrænt útboð, útboðsgögn eru afhent frá og með 2. desember 2021 rafrænt. Skal ósk um afhendingu gagna berast á netfangið rikey@fjallabyggd.is

Tilboðum ásamt tilskildum fylgigögnum skal skilað fyrir kl. 11:00 mánudaginn 13. desember 2021 með rafrænum hætti á netfangið rikey@fjallabyggd.is

Tilboð skulu auðkennd svo: 

  • „FJAL-2021-1: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskálar Siglufirði.“ 
  • „FJAL-2021-2: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði“ 

Opnunartími tilboða verður mánudaginn 13. desember kl. 11:00 á skrifstofu Fjallabyggðar.

Útboðin eru auglýst á utbodsvefur.is/ 

Allar nánari upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir

Netfang: rikey@fjallabyggd.is

Sími: 464 9100