Beikon- og cheddarvöfflur

  • 2 bollar hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  •  ½ tsk salt
  • nýmalaður pipar
  • 1 bolli rifinn cheddar ostur
  •  ½ bolli steikt beikonkurl
  • 2 stór egg
  • 1  ½ bolli mjólk
  • 2 msk grænmetisolía (vegetable oil)
  • hlynsíróp/pönnukökusíróp til að bera fram með vöfflunum

Hitið vöfflujárn. Hrærið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti. Setjið ost og beikon saman við og blandið vel.

Hrærið saman í annarri skál eggjum, mjólk og olíu. Setjið þurrefnin saman við og hrærið þar til allt hefur blandast. Passið að ofhræra ekki deigið.

Setjið feiti á heitt vöfflujárnið. Setjið um  ½ bolla af deigi á vöfflujárnið og bakið í 3-5 mínútur eða þar til vafflan er gyllt á litinn og osturinn er bráðnaður. Endurtakið þar til deigið er búið. Berið vöfflurnar fram heitar með hlynsírópi.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit