Sunnudaginn 8. mars klukkan 14.30 verður sannkölluð suðræn stemning í Brimsölum á Ólafsfirði þegar þeir Guito Thomas og Rodrigo Lopes stíga á svið og flytja lifandi og heillandi brasilíska tónlist.
Þeir Guito og Rodrigo eru þekktir fyrir að töfra fram ekta brasilíska sveiflu og létta stemningu.
Að sögn skipuleggjenda er tímasetningin kjörin fyrir notalegt sunnudagseftirmiðdegi þar sem nágrannar og vinir geta komið saman og notið tónlistar og samveru. Boðið verður upp á heitar vöfflur og kaffi með tónlistinni, sem setur punktinn yfir i-ið og gerir stundina enn notalegri.
Íbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í þessari suðrænu tónlistarveislu sem lofar góðri stemningu og hlýju í hjarta bæjarins.
Mynd: Facebook / Brimsalir




