Fjallabyggð kynnir áform um breytingar á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og breytingar á deiliskipulagi útivistarsvæðis í Hólsdal.

Tilefni breytinganna eru fyrirhugaðar framkvæmdir við Fljótagöng og markmið breytinganna er að tryggja samræmi milli fyrirhugaðra framkvæmda og gildandi skipulagsáætlana. Helstu þættir breytinga eru uppfærsla á veglínu í gildandi aðal- og deiliskipulagi ásamt öðrum lagfæringum vegna breyttra forsenda sem kunna að hafa orðið á svæðinu frá því gildandi deiliskipulag tók gildi árið 2012.

Breytingar á aðal- og deiliskipulagi verða unnar og auglýstar samhliða.

Nánar má kynna sér breytingar með því að smella hér. Breytingarnar hafa einnig verið birtar í Skipulagsgátt.

Forsíðumynd/skjáskot úr skipulagslýsingu