Matvælastofnun barst rétt fyrir helgi tilkynning um að brúni hundamítillinn (Rhipicephalus sanguineus) hafi greinst á hundi sem farið var með til skoðunar til dýralæknis á Selfossi vegna kláða og húðvandamála. Mítillinn var greindur á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Þessi mítlategund hefur aðeins greinst í örfá skipti hér á landi og er ekki talinn landlægur. Matvælastofnun vinnur áfram að því að hindra að þessi vágestur nái fótfestu hér á landi. Stofnunin vill benda hundaeigendum á að vera vakandi fyrir þessu sníkjudýri og hafa samband við dýralækni ef þeir verða varir við mítla eða eitthvað grunsamlegt í feldi hunda sinna.
Brúni hundamítillinn greindist síðast hér á landi árið 2017, en þá hafði hann ekki greinst frá árinu 2010. Tekist hefur að uppræta hann í hvert sinn.
Meindýr eins og brúni hundamítillinn geta borist með fólki og farangri þess erlendis frá þar sem hann er landlægur, sér í lagi með því sem hefur verið í snertingu við dýr eða nálægt dýrum. Matvælastofnun vekur athygli á mikilvægi þess að gæta smitvarna og reyna eins og kostur er að bera ekki smitefni með sér til landsins, t.d. með því að þvo allan fatnað og annað sem hefur verið í snertingu við dýr, hreinsa öll óhreinindi af skóm, þvo þá, þurrka og sótthreinsa.
Brúni hundamítillinn (Rhipicephalus sanguineus) nærist helst á hundum en getur lagst á önnur spendýr, svo sem nagdýr. Hann er eini mítillinn sem getur farið í gegnum allan lífsferilinn innanhúss og getur því fundist allt árið um kring. Um 5% mítlanna eru til staðar á hundinum, en um 95% eru í umhverfinu. Mítillinn getur lifað í 3-5 mánuði á hverju þroskastigi í upphituðu húsi án þess að fá næringu.
Erlendis er þekkt að brúni hundamítillinn geti borið smitefnin Ehrlichia canis og Babesia canis sem valda sjúkdómum í hundum en þessi smitefni hafa ekki fundist hér á landi. Jafnframt er vitað að mítillinn geti borið bakteríuna Rickettsia conorii, sem getur valdið sjúkdómi í fólki og er landlæg í löndum við Miðjarðarhafið (Mediterranean spotted fever) en hefur aldrei greinst hér.
Matvælastofnun mun fyrirskipa að dýr sem mítillinn hefur greinst á verði einangruð frá öðrum dýrum, þangað til viðurkennd lyfjameðhöndlun er hafin og orðin virk. Samhliða meðhöndlun þarf að ryksuga daglega allt á heimilinu í hólf og gólf, sérstaklega staði sem mítlarnir geta leynst á s.s. í sprungum, undir listum, þröskuldum o.s.frv. Bæli hundsins, teppi, fatnað o.s.frv. þarf að þvo. Frysting eða gufuhreinsun getur verið ráð í sumum tilvikum ef ekki er hægt að þvo. Ef mikill fjöldi mítla er í húsnæðinu gæti þurft að leita til meindýraeyðis.
Mikilvægt er að allir dýralæknar séu vel á varðbergi gagnvart þessum mítlum og sendi alla mítla sem finnast til greiningar á Keldum. Bent er á að Keldur taka við öllum þeim mítlum sem finnast án kostnaðar. Ef hundamítill greinist þarf að tilkynna það tafarlaust til Matvælastofnunar: mast@mast.is.
Ítarefni:
Frétt Matvælastofnunar 20. janúar 2017 – Brúni hundamítillinn greinist á ný
Frétt Matvælastofnunar 15. júní 2017 – Nýtt tilfelli af brúna hundamítlinum
Viðtal við dýralækni gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun á Bylgjunni
Grein í tímariti Hins íslenska náttúrufræðifélags – Blóðsjúgandi hundamítlar berast til Íslands
Mynd/ Wikimedia Commons