Olweuskönnun var lögð fyrir 5.-10.bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar snemma árs 2023.

Á 126. fundi fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar kynnti Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar niðurstöðuna.

Mælitala fyrir einelti í Grunnskóla Fjallabyggðar er nú 3,2, en einelti í Olweusskólum á landsvísu mælist 5,9.

Eineltisteymi grunnskólans hefur þegar unnið markvisst að viðbrögðum við niðurstöðunum.