Framlengdur umsóknarfrestur um embætti forstjóra Landspítala
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja umsóknarfrest um embætti forstjóra Landspítala til 8. nóvember næstkomandi.
Í upphaflegri auglýsingu um embættið var veittur tveggja vikna lögbundinn lágmarksfrestur en ráðherra hefur nú ákveðið að veita mögulegum umsækjendum rýmri tíma en áskilið er í lögum nr. 70/1996.
Ráðherra hefur jafnframt lengt setningartíma Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur í embætti forstjóra um tvo mánuði, þ.e. til 1. mars næstkomandi.