Image

Ekki skemma fríið með gleymsku!

Er vegabréfið ekki örugglega enn í gildi?

  • Útrunnið vegabréf er alltaf ógilt vegabréf !
  • Það er EKKI hægt að framlengja útrunnið vegabréf – þú verður að fá nýtt.
  • Það er EKKI hægt að „redda“ neinu þegar komið er upp á flugvöll.

  • Sótt er um vegabréf hjá Sýslumönnum
  • Þú forskráir umsókn og greiðir fyrir hjá ísland.is.
  • Þú mætir síðan í myndatöku hjá sýslumönnum.
  • Þú færð ókeypis hæðarmælingu og sýnir okkur hvað þú ert með fallega undirskrift.
  • Listi yfir umsóknarstaði innanlands má finna hér
  • Listi yfir umsóknarstaði erlendis má finna hér
  • Ef þú ert að fara út fyrir EES þarf vegabréfið að gilda í a.m.k. 6 mánuði fram yfir áætlaða heimkomu.

Ertu að sækja um fyrir barn?

  • Forsjáraðili fyllir út umsókn og greiðir fyrir hjá ísland.is.
  • Ef forsjáraðilar eru tveir þarf hinn aðilinn að staðfesta umsókn.
  • Forsjáraðili mætir með barn í myndatöku hjá sýslumönnum.
  • Ef umsókn hefur verið forskráð og samþykkt af báðum forsjáraðilum er nóg að annar forsjáraðilinn mæti með barnið.
  • Barnið VERÐUR að vera með þar sem tekin er mynd af því.

Það tekur ekki nema um 6 daga að framleiða vegabréfið

  • Hægt er að sækja um hraðafgreiðslu en greiða þarf aukalega fyrir það.
  • Hægt er að sækja tilbúin vegabréf hjá sýslumönnum eða Þjóðskrá í Reykjavík
  • Það er EKKI hægt að sækja tilbúin vegabréf utan afgreiðslutíma – það er engin bakvakt.
  • Ef ÞÚ getur ekki sótt vegabréfið þitt á afhendingarstað getur þú veitt öðrum umboð til þess fyrir þig.