Á 319. fundi skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar var tekin fyrir beiðni frá Tark-arkitektum um frest til 15. maí.
Vilja þeir þennan frest til að skila inn tillögum að svörum og gögnum sbr. grein 5.7.1 í skipulagslögum varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar.
Nefndarmenn samþykktu beiðnina. Nefndarmenn skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar eru þau, Arnar Þór Stefánsson formaður, Tómas Atli Einarsson varaformaður, Ólafur Baldursson aðalm. Þorgeir Bjarnason aðalm. og Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
Sjá umsagnir varðandi breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar vegna Samkaupsbyggingarinnar. HÉR
Mynd/úr umsögnum