Þátturinn verður sendur út beint frá Studio 7 á Englandi og í dag mun Oskar Brown bjóða hlustendum FM Trölla upp á glæsilega tónlistarblöndu þar sem Brit-verðlaunahafar þessa árs eru áberandi. Nokkrir eldri smellir fá að fljóta með og einnig verða tvö splúnkuný lög frumflutt í þættinum.

Á meðal flytjenda eru Billie Eilish, Friðrik Dór, Griff, Gróa, Malin Andersson, Midnight Bullet, Olivia Rodrigo, og Teitur Magnússon.

Endilega stilltu á FM Trölla frá kl. 17 í dag, þú sérð ekki eftir því. 

Plötuspilarinn er á FM Trölla alla föstudaga frá kl. 17:00 – 18:00.

FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is