Samningur við Stangveiðifélag Siglufjarðar staðfestur

Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt samning við Stangveiðifélag Siglufjarðar um veiðistjórnun og umsjón með Hólsá og Leyningsá. Samningurinn gildir til 1. október 2028.

Gerðar voru lítilsháttar breytingar á samningnum áður en hann var samþykktur, meðal annars varðandi söfnun upplýsinga um veiði í Hólsá. Samningurinn kveður ekki á um fjárhagslegar skuldbindingar af hálfu sveitarfélagsins til félagsins á fyrsta samningsári. Það ákvæði verður tekið til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026.

Með samningnum er tryggð áframhaldandi umsjón og veiðistjórnun á þessum svæðum í samvinnu við Stangveiðifélag Siglufjarðar.

Mynd/Ingvar Erlingsson