Lagt fram erindi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á 852. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar um styrkveitingu til reksturs Bjarmahlíðar þolendamiðstöðvar á Akureyri fyrir árið 2025.
Í erindinu er lagt til þrískipt framlag eftir stærð sveitarfélaga og að sveitarfélög með 1000-5000 íbúa leggi fram 600 þúsund króna styrk til starfseminnar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að framlag ársins 2025 verði kr. 600.000,-. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.