FRÉTTABRÉF SSNE – 18.TBL ÁGÚST 2021
Hér lítur ljós 18. eintak af mánaðarlegu fréttabréfi SSNE þar sem farið er yfir það helsta sem Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hafa fengist við síðustu vikur.
Af mörgu er að taka en helst ber að nefna:
- Áhersluverkefni vegna almenningsamgangna á Norðausturlandi
- Norðanátt – samstarfsverkefni um nýsköpun
- Viðtal við sirkusfélagið Hringleik sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra 2021
- Hlekkir á áhugaverða þætti sem SSNE fékk N4 til að vinna fyrir sig um lífið á Norðausturlandi en þetta var eitt af áhersluverkefnum SSNE 2021
- Upplýsingar um nýja styrki sem SSNE býður upp á til að standa straum af kostnaði við styrkumsóknarskrif en þetta var einnig eitt af áhersluverkefnum SSNE 2021
- Greinargott og viðamikið yfirlit yfir alla helstu styrkina sem eru í boði á næstunni
- Nýr verkefnastjóri Velferðartæknimiðstöðvar
- Heimsókn sendiherra Evrópusambandsins
- Viðtal við nýjan verkefnisstjóra Glæðum Grímsey
- Stórkostleg endurbygging Óskarstöðvarinnar á Raufarhöfn
- Opnun nýrrar starfsstöðvar SSNE á Tröllaskaga
- Nýsköpunarvinnustofa landsbyggðanna sem fram fór á Rifi á Snæfellsnesi nýverið
- Starfsdagur SSNE
- Pistill framkvæmdarstjóra
Lesendur eru hvattir til að senda ábendingar og hugmyndir fyrir fréttabréfið sem er í stöðugri framþróun.
FRÉTTABRÉF SSNE – 18.TBL ÁGÚST 2021