Norrænt heilsuhakkaþon var haldið í HR seinnipart mars mánaðar. Þar kepptust teymi frá fjölmörgum löndum við að vinna úr gögnum um heilsu, heilsufar og félagslega stöðu með það að markmiði að þróa tæknilausnir sem miða að því að auka lífsgæði og velferð notenda. Metfjöldi liða og einstaklinga óskaði eftir þátttöku en um 70 þátttakendur voru valdir til keppni. Loks var 21 verkefni kynnt fyrir sérstakri dómnefnd og þau bestu verðlaunuð.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, veitti því verkefni sem best þótti stuðla að aukinni félagslegri velferð verðlaun fyrir hönd félagsmálaráðuneytisins. Átján verkefni af tuttugu og einu kepptu um þau verðlaun. Sérstök dómnefnd taldi verkefnið Lokbrá skara framúr. Þar er um að ræða hugbúnað sem vaktar svefnvenjur fólks og gerir það að verkum að hægt er að bregðast við ef eitthvað fer úrskeiðis. Hugmyndin er að hægt verði að tengja Lokbrá við snjallsíma eða snjallúr.

Ráðherra sagði ljóst að nýsköpun muni þegar til framtíðar er litið gegna afar mikilvægu hlutverki í öflugri velferðarþjónustu.

„Það er virkilega gaman að sjá þá hugmyndaauðgi og metnaðarfullu sýn sem fram kom í keppninni. Við þurfum að vera vakandi fyrir því að styðja við nýjar hugmyndir og tæknilausnir því þær geta orðið til þess að auka lífsgæði okkar allra.”

 

Af stjornarradid.is