„Kokkurinn á Bessastöðum hefur unnið þar svo áratugum skiptir og fer að fara á eftirlaun. Við erum að leita að eftirmanni. Á Bessastöðum er mikið um pönnukökur. Ég skora því á sigurvegara í pönnukökubakstri til að vera í sambandi við okkur,“ sagði Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, í ávarpi við setningu Landsmóts UMFÍ 50+ sem fram fer í Fjallabyggð um helgina. Halla og Björn Skúlason, maður hennar, heiðruðu mótið með nærveru sinni á fjölmennri setningu mótsins á Siglufirði á föstudaginn.
Á setningunni hittu Halla og Björn Eygló Alexandersdóttur úr Reykjanesbæ, sem tekur þátt í mótinu undir merkjum Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB). Hún fór með sigur af hólmi í keppni í pönnukökubakstri á mótinu í fyrra. Hún er vafalaust nokkuð eldri en pönnukökumeistarinn á Bessastöðum enda 77 ára síðan í janúar.
Vel sótt landsmót
Landsmótið er vel sótt og rúmlega 350 þátttakendur 50 ára og eldri skráðir til leiks í 14 íþróttagreinum. Mótið hófst á föstudaginn með keppni í fjölmennum greinum, boccía og ringó, sem keppt var í á Siglufirði. Keppni heldur áfram í dag með sundi og badmintoni á Siglufirði en færist eftir það yfir á Ólafsfjörð eftir því sem líður á daginn. Þar verður líka gestum og gangandi boðið að prófa ýmsar greinar, svo sem borðtennis.
Við setninguna héldu þau Óskar Þórðarson, formaður Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar, ávarp og benti á kosti mótsins, það væri fyrsta stóra verkefni íþróttahéraðsins. Vel hafi tekist til og verði þau fleiri í framtíðinni. Hann þakkaði öllum þeim sjálfboðaliðum sem að því komu fyrir.
Ragnheiður Högnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar UMFÍ, hélt sömuleiðis ávarp fyrir hönd UMFÍ.
Bjarkey Olsen, sviðsstjóri velferðarsviðs Fjallabyggðar, hélt ávarp fyrir hönd Fjallabyggðar og sagði þátttakendur mótsins fyrirmyndir fyrir aðra.
„Þið eruð ekki aðeins að koma á þetta mót til að efla heilbrigði heldur líka til að vera fyrirmyndir fyrir komandi kynslóðir. Það skiptir máli að efla lýðheilsu saman,“ sagði hún.
Íslendingar þurfi að setja sér mörk
Halla tók fram að hún hafði ákveðið að halda ekki formlegt ávarp. Þess í stað vildi hún veita nokkur ráð. Í fyrsta lagi bað hún fólk um að láta keppnisskapið ekki bera sig ofurliði. Annað ráðið var hvatning til fólks um að halda áfram að leika sér.
„Enginn hefur kennt mér það betur en tengdamóðir mín, sem bjó á Siglufirði. Fyrir 15-18 árum vorum við Björn að kenna börnunum okkar að hjóla. Annað var þriggja ára og hitt fimm ára. Við vorum á skólalóð í Kársnesinu í Kópavogi þegar þetta átti sér stað. Þá hringir tengdamamma mín og spyr hvort hún megi koma og kynna fyrir okkur kærastann sinn. Ég er að reyna að muna hvort hún hafi þá verið 70 ára og hann 75, eða um það bil. Nokkrum mínútum síðar kemur appelsínugult mótorhjól, svokallað low-rider, inn á skólalóðina. Kona stígur af hjólinu með leðurblöðkur utan á gallabuxunum sínum – og stóran hjálm. Og með henni stór og nokkuð sterklegur karlmaður. Þau höfðu kynnst á Sæludögum á Siglufirði. Þau léku sér á þessu mótorhjóli, settu það aftan í húsbílinn og fóru á allar bæjarhátíðir landsins,“ sagði Halla og hvatti þátttakendur til að halda áfram að leika sér.
Þriðja ráðið sagði Halla það mikilvægasta. Í því felist að auka samveruna, tala við börnin og hvert annað meira en nú er gert: „Vanlíðan, einmanaleiki, einangrun og leiði og kvíði eru að aukast. Ekki bara hjá unga fólki heldur eldra fólkinu líka. Það hefur átt sér stað rof í samfélaginu,“ sagði hún og benti á að ungt fólk sé fimm klukkustundir á dag á samfélagsmiðlum og fái 223 tilkynningar í lófann á hverjum degi. Biðlaði hún því til Íslendinga að setja sér skynsamleg mörk í notkun samfélagsmiðla og taka meiri þátt í samfélaginu, spila bridds, fara í sund eða hverju sem er.
„Verjum meiri tíma saman,“ sagði hún.
Allar upplýsingar um mótið er að finna á www.umfi.is
Mynd/UMFÍ