Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur vakið sérstaka athygli á snjóalögum nyrst á Tröllaskaga, þar sem talsverð snjókoma hefur verið í gær og í dag. Samkvæmt veðurspám er gert ráð fyrir áframhaldandi snjókomu á svæðinu næstu daga, einkum á Siglufirði og í Ólafsfirði.
Samkvæmt mati Veðurstofu Íslands er snjóflóðahætta á svæðinu á stigi þrjú. Það þýðir að snjóþekjan er almennt stöðug, en í einstaka bröttum brekkum getur stöðugleiki hennar verið minni.
Af þessu tilefni hafa verið sett upp skilti við varnargarðinn á Siglufirði sem banna göngu á og við garðinn. Lögreglan hvetur fólk til að virða lokunina og fylgjast jafnframt með þróun úrkomu næstu daga.
Nánari upplýsingar um veður og aðstæður má finna á vefjum Veðurstofu Íslands og Vegagerðarinnar. Með tilkynningunni fylgja myndir frá Siglufirði sem teknar voru í morgun og sýna lokunarskiltin við varnargarðinn.
Mynd: Lögreglan á Norðurlandi eystra





