Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt erindi frá Vélsleðafélagi Ólafsfjarðar um að halda snjókross keppni innanbæjar í Ólafsfirði helgina 10. til 12. apríl 2026.
Í afgreiðslu bæjarráðs kemur fram að erindið sé samþykkt fyrir sitt leyti, með þeirri áherslu að félagið skili keppnissvæðinu, eftir því sem kostur er, í sama ástandi og það var fyrir keppni, verði þörf á snjóflutningum eða öðru raski vegna framkvæmdarinnar.
Drónamynd: Magnús G. Ólafsson



