Auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að sinna grenjavinnslu og minkaeyðingu í Húnaþingi vestra næstu fjögur ár.

Umsóknir bárust um grenjavinnslu á öll veiðisvæði og gerðir hafa verið samningar við umsækjendur.  Ekki bárust umsóknir um öll veiðisvæðin í minkaveiði, en leitað var til aðila til að sinna þeim svæðum sem ekki bárust umsóknir um. Gengið hefur verið frá samningum við umsækjendur til fjögurra ára, en um þau svæði sem ekki bárust umsóknir um var samið við viðkomandi aðila til eins árs.  

Eftirtaldir aðilar sinna grenjavinnslu og minkaveiði í Húnaþingi vestra:

Grenjavinnsla til fjögurra ára:
Óskar Sigurbjörnsson Vatnsnes vestan
Björn V. Unnsteinsson Vatnsnes austan
Benedikt Guðni Benediktsson Miðfjörður
Skúli Sigfússon Víðidalur
Þorbergur Guðmundsson Hrútafjörður austan
Hannes Hilmarsson Hrútafjörður vestan

 Minkaveiði til fjögurra ára: 
Þorbergur Guðmundsson Miðfjörður
Elmar Baldursson Vatnsnes austan
Þormóður Heimisson Vatnsnes vestan

 Minkaveiði til eins árs: 
Elmar Baldursson Víðidalur
Kristmundur Ingþórsson Víðidalur
Hannes Hilmarsson Hrútafjörður vestan
Þormóður Heimisson Hrútafjörður austan

Heimild: hunathing.is