Undanfarna daga hefur undirbúningur verið í hámarki fyrir tónleikana Sól rís í Grímsey sem haldnir verða í Akureyrarkirkju í kvöld, miðvikudagskvöldið 27. apríl í þeim tilgangi að afla fjár til byggingar nýrrar kirkju í Grímsey.

Eins og kunnugt er brann Miðgarðakirkja til grunna ásamt öllum kirkjumunum að kvöldi 21. september síðastliðinn.

Allt listafólkið gefur vinnu sína en þeir sem fram koma eru Friðrik Ómar, Kristjana Arngrímsdóttir, Óskar Pétursson, Stefán Elí, Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir, Anna Skagfjörð, tríó Jónasar Þórs, Ívars og Valmars. Hljómsveitarstjóri er Eyþór Ingi Jónsson og kynnir kvöldsins Sr. Oddur Bjarni Þorkelsson úr Ljótu hálfvitunum.

Kirkjubruninn í Grímsey var mikið reiðarslag og snerti við hjörtum þjóðarinnar. Slökkvilið eyjarinnar þurfti fljótlega að lúta í lægra haldi en kirkjan varð alelda á örskömmum tíma í stífri norðanátt. Grímseyingar voru strax staðráðnir í byggja nýja kirkju og fengu Hjörleif Stefánsson arkitekt til að teikna nýja kirkju. Útlit nýju kirkjunnar mun hafa augljósa skírskotun til þeirrar gömlu. Einnig er horft til þess að nýja kirkjan þjóni auk helgihalds, hlutverki menningarhúss. Bygging nýrrar kirkju á nyrsta kirkjustað landsins er viðamikið samfélagslegt verkefni sem Grímseyingar leggja nú allt kapp á að verði að veruleika.

Til stendur að hefja byggingu nýrrar kirkju í Grímsey í sumar sem tekin verður í notkun sumarið 2023.

Miðar á tónleikana eru til sölu á tix.is en þeim sem vilja styrkja söfnunina með frjálsum framlögum er bent á söfnunarreikning Miðgarðakirkju, grimsey.is/kirkja
Kennitala: 460269-2539
Reikningsnúmer: 565-04-250731


Forsíðumynd:  Teikning Hjörleifs Stefánssonar arkitekts að nýrri kirkju.