H-Listinn hefur kynnt framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Fjallabyggð sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026.

Listann leiðir Helgi Jóhannsson fjármálaráðgjafi og í öðru sæti er Kristinn Kristjánsson verslunarstjóri. Í þriðja sæti er Ásgeir Logi Ásgeirsson framkvæmdastjóri og í fjórða sæti Auður Hilddal Magnúsdóttir háskólanemi í hjúkrun.

Í fimmta sæti er Guðlaugur Magnús Ingason ökumaður og í sjötta sæti Þorfinnna Þrastar­dóttir ljósmóðir. Þorgeir Bjarnason málarameistari skipar sjöunda sætið og Klara Mist Pálsdóttir skipstjóri og leiðsögumaður er í áttunda sæti.

Í níunda sæti er Jón Valgeir Baldursson pípulagningameistari og í tíunda sæti Andri Viðar Víglundsson sjómaður. Aðalbjörg Snorradóttir fjármálastjóri er í ellefta sæti og Áki Berndsen verslunarmaður í því tólfta.

Katrín Freysdóttir þjónustufulltrúi skipar þrettánda sætið og Árni Helgason framkvæmdastjóri er í fjórtánda sæti.

Á listanum eru fulltrúar með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu, meðal annars úr fjármálageiranum, sjávarútvegi, verslun og heilbrigðisþjónustu.

H-Listinn Fyrir Heildina í Fjallabyggð