Oskar Brown býður hlustendum í Egg, Beikon og Bakaðar Baunir í beinni útsendingu á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10.
Þátturinn, sem er sendur út beint frá Studio 7 á Englandi, inniheldur skemmtilega tónlistarblöndu, fréttir af forsíðum dagblaðanna, og skringilegar sögur af fólki utan úr heimi.
Oskar kíkir einnig á helgarveðrið og býður öllum að taka þátt í hressilegri morgunleikfimi.
Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.
FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni, og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is